oldschool_logo

oktober_2010_55

Gamla barnaskólanum í Hrísey hefur verið breytt og er innréttaður núna með

vinnustofu og þremur svefnherbergjum til útleigu fyrir listamenn hvaðanæva úr

heiminum. Norðanbál á og rekur Gamlaskóla og er markmiðið að listamenn fái

möguleika til þess að vera í Hrísey og hafi aðgang að þessum einstaka stað,

gegn vægu verði. Hrísey er staðsett í miðjum Eyjafirði með töfrandi fallegu útsýni

á fjallahringinn allt í kring. Eyjan er afar heillandi og fallegur staður sem allir ættu

að fá að upplifa og njóta.

Gamliskóli, eins og hann er kallaður, er staðsettur miðsvæðis í þorpinu í Hrísey,

í u.þ.b.10 mín. göngulengd frá bryggjunni þar sem ferjan leggst að.

 

Um eyjuna
Eyjan er 7,0 km2 stór og 7,5 km löng. Einu almenningssamgöngurnar eru ferjan

Sævar sem siglir frá Árskógssandi nokkrum sinnum á dag út í eyjuna og tekur

siglingin 20 mín. en einnig eru áætlunarferðir með rútu frá Akureyri að ferjunni.

 

Í þorpinu er ýmis þjónusta: veitingastaður, verslun, pósthús, banki og sundlaug

svo eitthvað sé nefnt, allt í göngufjarlægð frá Gamlaskóla. Náttúrufegurð er mikil,

dýralíf fjölbreytt, gönguleiðir margar og misjafnar og bjóða upp á einstaka upplifun.

Í Gamlaskóla er allt sem til þarf til ánægjulegrar dvalar:  þrjú aðskilin svefnherbergi,

afmarkað vinnusvæði fyrir hvert þeirra, nettenging fyrir alla, stofa/eldhús, sturta,

þvottavél, sjónvarp o.fl.